LISTAMANNASÚPA

Ég geri reglulega kjúklingasúpu, fyrir ónæmiskerfið og sálina. Í dag langaði mig að gera virkilega góða súpu og eina sem að krakkarnir myndu borða með bestu lyst…listamannasúpa varð til.

Það hafa margir heyrt um skólastjórasúpu, sem ég veit að syni mínum þykir góð. Ég gúglaði nokkrar þannig uppskriftir og “for the soul” og fór svo og týndi úr ískápnum það sem til var, með hollustuna að leiðarljósi og úr varð Listamannasúpa.

Og þar sem ég tók ekki mynd af súpunni læt ég þessa fylgja með til að krydda aðeins upp á færsluna og minna á að GÓÐUR hvítlaukur gerir súpuna betri…Bíð spennt eftir að sjá þann íslenska í verslunum.

LISTAMANNASÚPA

  • Kjúklingur, úrbeinaðir leggir. ( Heill kjúklingur með beini og gerasoð væri skrefi ofar.)
  • Sæt kartafla, notaði 1/2
  • Græn paprika, 1 stk
  • Brokkólí
  • 2 Gulrætur
  • 1/2 laukur
  • Góður biti af púrru
  • Hvítlaukur, 3-5 rif
  • Engifer, 2 cm bútur
  • Olía til steikingar
  • Eplaedik, lífrænt 1 msk
  • Lífræn tómatsósa, Biona, 2 msk
  • 1/2 dós rjómaostur
  • 2 dl rjómi
  • Rifinn börkur af 1/2 sítrónu
  • 1 líter vatn.

Krydd sem ég notaði voru túrmerik, karrý, shawarma frá kryddhúsinu, cyenne pipar, hvítlaukssalt og grænn pipar. Ferskar kryddjurtir ættu vel við hér og hefði ég notað þær ef ég hefði átt til, t.d kóríander, basil, graslauk og steinselja.

Skerið kjúklinginn í bita og steikið upp úr olíu, bætið við kryddum. Saxið grænmeti eftir hentugleika og smekk og bætið við og að lokum öllu öðru nema rjóma og rjómaosti. Setjið stillingu á Instant Pot á Pressure Cook á 5 mín. Eftir það losaði ég þrýsting og setti á saute stillingu og bætti við rjómaosti og rjóma.

Með þessu bar ég fram “on the side” spaghetti frá Tariello.